Nýtt viðmiðunarverð 2. mars 2021 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 2. mars 2021, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur lækkar um 5,0%
Óslægður þorskur lækkar um 12,1%
Slægð ýsa lækkar um 2,0%
Óslægð ýsa lækkar um 1,4%
Slægður og óslægður ufsi helst óbreyttur
Karfi helst óbreyttur
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 2. mars 2021.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.