Nýtt viðmiðunarverð 5. janúar 2018 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. janúar 2018, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur lækkar um -1,9%
Óslægður þorskur lækkar um -4,9%
Slægð ýsa hækkar um 1,5%
Óslægð ýsa helst óbreytt
Karfi hækkar um 4%
Ufsi lækkar um -1,2%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5.janúar 2018.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.