Nýtt viðmiðunarverð 4. desember 2017 |
![]() |
Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. desember 2017, var ákveðið að breyta viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:
Slægður þorskur hækkar um 3,5%
Óslægður þorskur hækkar um 6,0%
Slægð ýsa hækkar um 3,5%
Óslægð ýsa lækkar um -7,7%
Karfi helst óbreyttur
Ufsi lækkar um -3,2%
Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4.desember 2017.
Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. l. nr. 13/1998.