Úrskurður nr. U05/2003 |
![]() |
Úrskurður nr. U05/2003
Árið 2003, þriðjudaginn 27. maí er haldinn fundur í úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna í húsakynnum Landssambands ísl. útvegsmanna að Borgartúni 35 í Reykjavík. Mættir eru Hólmgeir Jónsson, Árni Bjarnason og Jóhanna Eyjólfsdóttir frá samtökum sjómanna og vélstjóra, en Friðrik J. Arngrímsson og Sveinn H. Hjartarson mæta af hálfu LÍÚ. Formaður nefndarinnar Skúli J. Pálmason er einnig mættur. Fyrir er tekið mál nr. U-5/2003: Landssamband ísl útvegsmanna (LÍÚ) f.h. Vinnslustöðvarinnar hf. v/ Jóns Vídalín ÁR-1 gegn Sjómannasambandi Íslands, Farmanna-og fiskimannasambandi Íslands og Vélstjórafélagi Íslands v/ áhafnar Jóns Vídalíns ÁR-1 I. Vinnslustöðin hf., Vestmannaeyjum vísaði til úrskurðarnefndar ágreiningi um fiskverð til áhafnar Jóns Vídalíns ÁR-1 með bréfi, dags. 7. þessa mánaðar. úrskurðarnefndar ásamt formanni og þá ákveðin málsmeðferð en ekki náðist samkomulag í málinu. Bréfið er svohljóðandi: Þar sem útgerð og áhöfn Jóns Vídalín ÁR 1 (1275) hafa reynt án árangurs að ná samningum um nýtt verð fyrir þorsk, ýsu og karfa vísar útgerð skipsins málinu til úrskurðarnefndar. Kröfur Vinnslustöðvarinnar hf. sem útgerðar skipsins eru, að eftirfarandi lækkanir verði á fiskverði í fyrri samningi, sem sagt var upp m.v. 30. apríl sl.: Lækkun á þorski um 10%. Lækkun á ýsu um 20%. Lækkun á karfa um 10%. Í ljósi þeirrar öru lækkana sem verið hafa á afurða- og fiskverði undanfarna mánuði, og ekki sér fyrir endann á, er farið fram á að úrskurðurinn gildi ekki lengur en í 1 mánuð. LÍÚ gætir hagsmuna Vinnslustöðvarinnar fyrir úrskurðarnefnd. Fulltrúar hagsmunaaðila ákváðu á fundi, sem einnig var haldinn 20. þessa mánaðar, að tilkveðja formann nefndarinnar og leiða málið til lykta með úrskurði. Á fundi nefndarinnar voru gögn málsins lögð fram. Þá tjáðu aðilar sig um fram komnar kröfur og færðu fram rök fyrir þeim. Málið var að því búnu lagt í úrskurð. Fulltrúar LÍÚ skiluðu greinargerð til Verðlagsstofu skiptaverðs (VSS) 18. maí sl., en fulltrúar Sjómannasambands Íslands og Farmanna-og fiskimannasambandi Íslands 20. sama mánaðar. Helgi Laxdal gerði grein fyrir afstöðu Vélstjórafélags Íslands á fundi nefndarinnar 20. maí sl. og ítrekar Jóhanna Eyjólfsdóttir þá afstöðu formanns félagsins. Í máli þessu verður eftirleiðis vísað til fulltrúa LÍÚ sem sóknaraðila en til fulltrúa sjómanna sem varnaraðila. II. Síðast gildandi samningur milli Vinnslustöðvarinnar hf. og áhafnar Jóns Vídalíns ÁR1 var svohljóðandi: Slægður þorskur
Slægð ýsa
Karfi
Ufsi: 4 kg. eða stærri 55 kr./kg. en ufsi undir 4 kg. 45 kr./kg. Fullt verð miðaðist við góða meðferð aflans, s.s. ísun, þvott og frágang hans í kör, eins og nánar segir í samningnum. Um flokkun segir, að þorskur og ufsi skulu flokkaðir í 4 kg. eða eftir nánara samkomulegi, en ýsa flokkuð í þrjá flokka 2 kg. og stærri,1 til 2 kg. og minni en 1,2 kg. Karfi skuli flokkaður í tvo flokka þ.e. 800 gr. og stærri og minni en 800 gr. LÍÚ, sem gætir hagmuna Vinnslustöðvarinnar hf., krefst óbreyttrar flokkunar og verður við það miðað í umfjöllun um kröfugerð sóknaraðila. Sama á við um ráðstöfun afla, en í fyrri samningi segir, að ráðstöfun afla sé í höndum útgerðarstjóra og aðrar fisktegundir en þær, sem að framan er getið, fari að öllu jöfnu á markað. Þessi krafa er einnig óbreytt af hálfu sóknaraðila. Vinnslustöðin hf. sagði upp samningnum með bréfi til áhafnar dags. 15. apríl sl. og skyldi uppsögnin taka gildi frá og með 30. sama mánaðar. III. Kröfur sóknaraðila fyrir úrskurðarnefndinni eru eftirfarandi: Í bréfi sínu til úrskurðarnefndar, sem áður er vísað til, krafðist Vinnslustöðin hf. lækkunar á verði þorsks, ýsu og karfa. Kröfugerð sóknaraðila LÍÚ, f.h. félagsins hönd, er sett upp með sama hætti og fyrri samningur félagsins við áhöfn Jóns Vídalín , en krafist er 10% lækkunar á verðlagningu á þorski og karfa, en 40% lækkunar á ýsuverði frá síðast gildandi samningi. Ástæðulaust þykir, að gera frekari grein fyrir kröfum sóknaraðila, að öðru leyti en því, að þess er krafist, að gildistími úrskurðarins verði frá 9. maí til 9. júní þessa árs. Rökstuðningur sóknaraðila: Þorskur, ýsa og karfi. Verðlagsstofa hafi útfært fiskverð í beinum viðskiptum í samræmi við ákvæði gerðardómsins og hafi það verið lagt til grundvallar í samningum milli útgerða og áhafna íslenskra fiskiskipa. Nú liggi fyrir, að verð á slægðum þorski, slægðri ýsu og karfa sé hærra en forsendur séu fyrir, samkvæmt þeim markmiðum sem skilgreind séu í úrskurði gerðardómsins og samningi LÍÚ og VSFÍ, eins og glögglega komi fram í meðfylgjandi gögnum Verðlagsstofu skiptaverðs. Ufsi Annað Kröfur og rökstuðningur varnaraðila. Verð á þorski hækki um 10% frá síðast gildandi fiskverðssamningi. Krafa Sjómannasambands Íslands og Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. Verð á þorski hækki um 10% frá síðast gildandi fiskverðssamningi. Fulltrúar varnaraðila byggja kröfur sínar, f.h. áhafnar Jóns Vídalíns, á því, að í síðustu tveimur málum, sem úrskurðarnefnd hafði til úrlausnar (Ú1/03 og Ú2/03), ásamt því máli, sem nú sé til meðferðar hjá nefndinni, hafi fulltrúar útvegsmanna greinilega talið, að hagsmunasamtök geti gert sérstakar kröfur fyrir nefndinni um breytingu á fiskverðssamningi, óháð því, hvað farið hafi fram í viðræðum milli áhafnar og útgerðar þess skips, sem málið varði. Með vísan til úrskurða nefndarinnar í málum Ú1/03 og Ú2/03 sé formaður úrskurðarnefndar sammála sjónarmiði fulltrúa LÍÚ hvað þetta varðar. Með vísan til afstöðu fulltrúa útvegsmanna í úrskurðarnefnd og formanns úrskurðarnefndar geri Sjómannasamband Íslands og Farmanna- og fiskimanna-samband Íslands framangreindar kröfu um fiskverð, sem gildi fyrir Jón Vídalín ÁR-1. Rökstuðningur: Um verð á ýsu og karfa vísist til úrskurðar gerðardóms og þeirra markmiða, sem uppfylla átti varðandi verð á þessum fisktegundum. Mikið hafi vantað á, að verð í beinum viðskiptum væri nægjanlega hátt í janúar 2002 til að uppfylla markmið gerðardómsins. Því sé órökrétt að krefjast lækkunar í samræmi við lækkun afurðaverðs frá þessum tíma. Krafa fulltrúa sjómanna um hækkun á verði ýsu og karfa sé í sama anda og lækkunarkrafa fulltrúa LÍÚ. Niðurstaða: Báðir málsaðilar byggja á ákvörðun lögskipaðs gerðardóms (eftirleiðis gerðardómurinn) um ákveðin markmið um verðlagningu á þorski, ýsu og karfa, sem málsaðilar skyldu ná á gildistíma úrskurðar gerðardómsins. Þessum markmiðum er nánar lýst hér að framan. Í úrskurði gerðardómsins segir, að þessi aðlögun skuli gerast með jöfnum stíganda á samningstímabilinu, sem skilja verður svo, að átt sé við gildistíma úrskurðarins, þ.e. til 31. desember þessa árs. Þar er einnig mælt svo fyrir að Verðlagsstofa skiptaverðs (VSS) skuli annast alla nánari útreikninga og framsetningu og skeri úr hugsanlegum ágreiningi sem upp kunni að koma um túlkun á efnisatriðum. Úrskurðarnefnd er bundinn af fyrirmælum gerðardómsins við ákvörðun fisk-verðs og skal í störfum sínum kappkosta að settum markmiðum gerðardómsins verði náð. Formaður nefndarinnar leitaði til VSS um upplýsingar um þróun og tengsl fiskverðs í beinni sölu og á fiskmarkaði. Samkvæmt upplýsingum VSS hefur markmiðum gerðardómsins verið náð að því er varðar þær fisktegundir, sem gerðardómurinn tók afstöðu til í úrskurði sínum. Þorskverð: Allt fram á þetta ár hefur verð á þorski í beinni sölu verið undir settum markmiðum nefndarinnar. Fulltrúar hagsmunaaðila hafa hækkað af því tilefni verð á þorski í beinni sölu, sem leitt hefur leiddi til þess, að markmið gerðardómsins náðust varðandi verð á þorski í upphafi þessa árs með jöfnum stíganda, eins og gerðardómurinn ákvað að gert skyldi. Með vísan til þess, sem að framan er rakið, þykja ekki vera efni til að fallast á kröfur sóknaraðila og lækka þorskverð í beinni sölu um 10%, enda sýnt að settum markmiðum gerðardómsins verður náð í desember á þessu ári, eins og áður er getið, né heldur að hækka þorskverð, eins og varnaraðili gerir kröfu til. Þorskverð til áhafnar Jóns Vídalíns ÁR-1 skal vera í samræmi við viðmiðunarverð VSS frá 25. febrúar sl. Ýsuverð: Úrskurðarnefnd lækkaði verð á ýsu um 5% með áðurnefndum úrskurði sínum í máli nr Ú-1/2003 og aftur um 10% í úrskurði í máli nr. Ú-2/2003. Þrátt fyrir þessa lækkun, spáir VSS því, að ýsuverð þyrfti að lækka umtalsvert miðað við líklega þróun, enda er verð á ýsu nú langt yfir viðmiðunarmörkum. Með vísan til þessa telur úrskurðarnefnd rétt að lækka viðmiðunarverð VSS á ýsu um 15%, sem gilda skal einnig við uppgjör til áhafnar Jóns Vídalíns ÁR-1. Um nánari útfærslu þessarar ákvörðunar vísast til úrskurðarorðs. Karfaverð: Samkvæmt upplýsingum VSS, er karfaverð, þrátt fyrir þessa lækkun vel yfir viðmiðunarverði gerðardómsins og mun það verðbil haldast út árið að öðru óbreyttu. Með hliðsjón af þessu telur úrskurðarnefnd rétt að lækka viðmiðunarverð VSS á karfa um 6%, sem einnig skal gilda um uppgjör til áhafnar Jóns Vídalíns ÁR-1. Vísast til úrskurðarorðs um nánari útfærslu. Úrskurðarorð: Verð það, sem Vinnslustöðin hf. skal miða uppgjör til áhafnar Jóns Vídalíns ÁR-1 við skal vera sem hér segir: Slægður þorskur
Slægð ýsa
Karfi
Ufsi: Óbreytt verð frá síðast gildandi samningi. Önnur atriði í síðast gildandi samningi um meðferð og ráðstöfun afla skulu vera óbreytt. Úrskurður þessi skal gilda frá 9. maí sl. til 9. júní n.k. Skúli J. Pálmason |